Mynd af Vélfang ehf

Vélfang ehf

Vélfang ehf. var stofnað í mars 2004 af þeim Eyjólfi Pétri Pálmasyni, Skarphéðni K. Erlingssyni, Stefáni G. Ármannssyni og Þórði Jónssyni. Mikill vöxtur hefur einkennt fyrirtækið frá stofnun þess en í febrúar 2005 var gengið frá kaupum á húsnæðinu á Gylfaflöt 24-30. Á vormánuðum gekk svo Kristján Ragnarsson til liðs við hluthafahópinn og er nú einn af eigendum fyrirtækisins. Ári síðar var starfsemin búin að sprengja utan af sér húsakostinn og var þá fjárfest í stærra húsnæði í sömu götu, en í janúar 2006 flutti fyrirtækið sig að Gylfaflöt 32. Árið 2006 hóf Vélfang einnig starfsemi að á Akureyri, sem sér um þjónustu fyrir viðskiptavini Vélfangs á norður- og austurlandi.Vélfang Akureyri er staðsett á Frostagötu 2a á Akureyri en þar er sölu- og þjónustuumboð.
Aðsetur fyrirtækisins er að Gylfaflöt 32 í Grafarvogi og opnunartími er frá 8-17 alla virka daga.


Vélfang ehf. selur og þjónustar jafnt nýjar sem notaðar vélar og tæki fyrir landbúnað, vélaverktaka, golfvelli og sveitarfélög. Markmið fyrirtækisins er að veita bestu þjónustu sem völ er á á markaðnum með þarfir viðskiptavina sinna í fyrirrúmi. Starfsmenn fyrirtækisins hafa mikla reynslu á þessum sérhæfða markaði og keppast við að uppfylla þarfir viðskiptavina sinna, hvort sem um er að ræða sölu og þjónustu á notuðum og nýjum vélum eða útvegun varahluta. Vélfang ehf. hefur varahluti á lager frá viðurkenndum framleiðendum í flestar tegundir dráttarvéla t.d. CLAAS, Fendt, Massey Ferguson, ofl.

Helstu framleiðendur sem Vélfang ehf. hefur umboð fyrir eru CLAAS, Fendt, JCB, Kuhn, Kverneland, Nokka Tume, Redrock og Tahler.


Eins og áður segir leggja starfsmenn Vélfangs ríka áherslu á samstarf við viðskiptavini sína þ.e. að finna þá lausn sem hentar hverju sinni, á besta verði sem völ er, en stundum hentar góð notuð vél jafn vel og ný og öfugt. Við bjóðum öllum sem vilja að skrá til sölu notaðar vélar á heimasíðuna okkar og einnig að skrá sig á óskalista eftir notuðum vélum.
Að lokum bjóðum við alla velkomna til okkar á Gylfaflötina í Reykjavík og Frostagötu 2a á Akureyri.

Starfsmenn

Eyjólfur Pálmason

Framkvæmdastjóri
eyjolfur@velfang.is
c