Mynd af Landssamtök lífeyrissjóða LL

Landssamtök lífeyrissjóða LL

Landssamtök lífeyrissjóða

Landssamtökin eru heildarsamtök lífeyrissjóða sem hlotið hafa starfsleyfi samkvæmt lögum nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða eða starfa samkvæmt sérlögum um lífeyrissjóði.

Landssamtökin hafa innan vébanda sinna 26 lífeyrissjóði sem í voru um 200 þúsund greiðandi sjóðfélagar í lok árs 2014. Allir lífeyrissjóðir landsins eru aðilar að samtökunum.

Eignir lífeyrissjóða í Landssamtökum lífeyrissjóða voru um 2.925 milljarðar króna í lok árs 2014.

Stærstu lífeyrissjóðir í Landssamtökum lífeyrissjóða miðað við hlutfall skiptingar heildareigna eru: Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Gildi lífeyrissjóður, Stapi lífeyrissjóður, Almenni lífeyrissjóðurinn og Sameinaði lífeyrissjóðurinn.

Hlutverk Landssamtaka lífeyrissjóða er að:

  • Gæta í hvívetna hagsmuna sjóðfélaga.
  • Vera málsvari gagnvart stjórnvöldum og öðrum í öllu sem varðað getur sameiginlega hagsmuni aðildarsjóðanna.
  • Hafa frumkvæði í þjóðmálaumræðu um málefni sjóðanna og lífeyrismál og stuðla að jákvæðri ímynd þeirra.
  • Vinna að útgáfu- og fræðslumálum lífeyrissjóða svo sem með námskeiðum og fræðslufundum, skýrslugerð og annarri þjónustu við lífeyrissjóði og sjóðfélaga.
  • Stuðla að hagræðingu og þróun í starfi aðildarsjóðanna.
  • Fylgjast með þróun lífeyrismála erlendis og taka þátt í alþjóðlegu samstarfi samtaka lífeyrissjóða.
  • Vinna að sérgreindum verkefnum fyrir einstaka lífeyrissjóði innan samtakanna, samkvæmt nánari ákvörðun stjórnar þeirra, enda standi slík starfsemi fjárhagslega undir sér og sé samrýmanleg markmiðum þeirra og tilgangi.

Starfsemi Landssamtaka lífeyrissjóða

Á vegum LL starfa fimm fastanefndir, Eigna og áhættustýringarnefnd, Réttindanefnd, Samskiptanefnd, Fræðslunefnd og Úrskurðar og umsagnarnefnd. Mikið starf er unnið innan og á vegum fastanefndanna en á vegum þeirra eru einnig nokkrir undirhópar starfandi um einstök tímabundin verkefni. Nánar um nefndir LL 2014 – 2015 og viðfangsefni þeirra má sjá hér.

Employees

Þórey Þórðardóttir

Framkvæmdastjóri

Kort

c