Mynd af Stálsmiðjan-Framtak ehf

Stálsmiðjan-Framtak ehf



Stálsmiðjan ehf og Framtak ehf voru ein af stærri fyrirtækjum í járniðnaði, skipaiðnaði og stóriðjugeiranum á íslandi, þau hafa í gegnum árin tekið að sér og unnið með sóma mörg af stærri verkefnum sem unnin hafa verið á landinu, að öðrum fyrirtækjum ólöstuðum. Um áramótin 2006-2007 keypti Stálsmiðjan ehf eignarhlut eiganda Véla og Skipaþjónustan Framtaks ehf (VS Framtak.ehf) og voru þessi fyrirtæki rekin í sitthvorulagi í nokkur ár á eftir.

Í smáum og stórum verkum unnu starfsmenn þessara fyrirtækja hlið við hlið og reikningshald var flókið og dýrt og var því ákveðið að breyta rekstrarforminu til hagræðingar og til varð fyrirtækið Stálsmiðjan Framtak ehf. um áramótin 2012 - 2013 og einkennismerkjum eða "Logo" beggja fyrirtækjanna var steypt saman, eins og áður vinna allir menn saman undir nýju merki og vonum við að viðskiptavinir fyrirtækjanna geti um ókomin ár sótt þjónustu til okkar þar sem við eru enn stærri og öflugri en við vorum í sitthvoru lagi.

Hjá fyrirtækinu starfa að jafnaði 110 - 120 manns; tæknimenn, vélvirkjar, rennismiðir, trésmiðir, starfsmenn í dráttarbrautum og starfsfólk skrifstofu.

Employees

Bjarni Thoroddsen

Framkvæmdastjóri
bjarni@framtak.is
c