Mynd af Gítarskóli Íslands ehf - Gís

Gítarskóli Íslands ehf - Gís

´


Gítarskóli Íslands hefur starfað frá júni 1993.

Kennt er á kassagítar, klassískan og þjóðlagagítar, rafgítar, rafbassa og kontrabassa, auk tónfræðigreina.

Hljóðfærakennsla fer fram í einkatímum og tónfræðikennsla í hóptímum og miðast við áhuga og getu hvers og eins nemanda.

Við Gítarskóla Íslands starfa fjölmargir hæfir og vel menntaðir kennarar sem leggja metnað í það að nemendur fái kennslu sem hæfir áhugasviði og getustigi hvers og eins, með góðan árangur og framfarir allra að markmiði.

Í Gítarskóla Íslands er boðið upp á nám samkvæmt námsskrá Menntamálaráðuneytisins. Um er að ræða Klassíska braut og Jazz/rokk braut, ásamt tónfræðigreinum.

Sótt er um slíkt nám á vefsvæði Reykjavíkurborgar - www.rvk.is

Í skólanum er einnig boðið upp á námskeið á haustönn í 12 vikur og á vorönn í 12 vikur.

Í júnímánuði hafa verið haldin “crash course” námskeið i 4 vikur þar sem eru 2 kennslustundir i viku.

Öll námskeiðin eru kennd í Einkatímum. Jafnframt hljóðfæranáminu er mögulegt að fá tilsögn í lagasmíðum, hljóðupptökum og hljóðvinnslu.

Allir eru velkomnir á námskeiðin, byrjendur og lengra komnir, á öllum aldri.



Employees

Torfi Ólafsson

Skólastjóri
gitarskoli@gitarskoli.is

Tryggvi Júlíus Hübner

Skólastjóri
gitarskoli@gitarskoli.is
c