Mynd af Byggðasafn Hafnarfjarðar

Byggðasafn Hafnarfjarðar


Byggðasafn Hafnarfjarðar er lifandi og fróðlegt safn fyrir alla fjölskylduna.

Byggðasafn Hafnarfjarðar er minja- og ljósmyndasafn Hafnarfjarðarbæjar. Hlutverk þess er að safna og skrásetja, varðveita, forverja og rannsaka muni og minjar um menningarsögu svæðisins og kynna þær almenningi. Minjasvæði Byggðasafns Hafnarfjarðar er Hafnarfjörður og nágrenni hans.

Byggðasafnið er opið alla daga kl. 11:00-17:00 frá 1. júní – 31. ágúst í fimm húsum, Pakkhúsið, Sívertsens-hús, Beggubúð, Siggubær, Bungalowið og Strandstígurinn. Pakkhúsið er opið laugardaga og sunnudaga kl. 11:00 – 17:00 frá 1. september – 31. maí. Ókeypis aðgangur.

  • Í Pakkhúsinu eru að öllu jöfnu þrjár sýningar í gangi í einu, fastasýning um sögu bæjarins, leikfangasýning og þemasýning.
  • Í Sívertsen-húsi er sýnt hvernig yfirstéttarfjölskylda í Hafnarfirði bjó í byrjun 19. aldar, auk þess sem varpað er ljósi á merkilega sögu Bjarna Sívertsens og fjölskyldu hans.
  • Siggubær er varðveittur sem sýnishorn af heimili verkamanns og sjómanns í Hafnarfirði frá fyrri hluta 20. aldar.
  • Bungalowið var opnað eftir endurbætur árið 2008 og er þar að finna sýningu um tímabil erlendu útgerðanna í Hafnarfirði á fyrri hluta 20. aldar auk þess sem þar má sjá stássstofu Booklessbræðra.
  • Í Beggubúð er verslunarminjasafn Byggðasafns Hafnarfjarðar. Húsið, sem byggt var árið 1906, stóð áður við aðalverslunargötu bæjarins en var flutt á lóð safnsins, gert upp og opnað sem sýningahús árið 2008
  • Á strandstígnum meðfram höfninni í Hafnarfirði eru settar upp ljósmyndasýningar er varpa ljósi á dagleg störf og sögu fólksins sem bæinn byggði.

Employees

Björn Pétursson

Framkvæmdastjóri
c