Mynd af Tækniskólinn, skóli atvinnulífsins

Tækniskólinn, skóli atvinnulífsins

Lógo af Tækniskólinn, skóli atvinnulífsins

Telephone 5149000

Skólavörðuholt , 101 Reykjavík

kt. 5312023410



Tækniskólinn er stærsti framhaldsskóli landsins og samanstendur af 11 undirskólum. Hver undirskóli hefur faglegt sjálfstæði og skólastjóri stýrir faglegu starf hans.

Tækniskólinn hefur það að markmiði að vinna náið með atvinnulífinu. Þess vegna starfa sérstök fagráð við hverja braut skólans þar sem saman koma fulltrúar atvinnurekenda, launþega og fagkennara í viðkomandi grein.
Hlutverk fagráðanna er m.a. að sjá til þess að skólinn og atvinnulífið gangi í takt og að þarfir atvinnulífsins speglist í kennslu og námsframboði skólans.





Menntun

Við leitumst við að veita nemendum okkar fjölþætta menntun sem nýtist þeim til starfs eða áframhaldandi náms og til virkrar þátttöku í lýðræðisþjóðfélagi. Inntak og framsetning kennslunnar er alltaf í endurskoðun með það fyrir augum að koma á framfæri bestu hefðum og nýjustu tækni. Við leggjum áherslu á að virkja sköpunarkraftinn og stuðlum að samþættingu ólíkra greina.

Virðing

Við mætum hverjum nemenda þar sem hann er staddur og væntum mikils af honum. Við stuðlum að og virðum jafnrétti, lýðræði og mannréttindi. Við berum virðingu fyrir starfsfólki okkar og nemendum og bjóðum þeim góðar aðstæður. Við virðum gildi og hefðir faggreina og nálgumst umhverfi okkar með endurnýtingu og sjálfbærni að leiðarljósi .

Fagmennska

Við leggjum áherslu á fagmennsku á öllum sviðum, í kennslu, stoðþjónustu og í samskiptum við nemendur, foreldra og atvinnulíf. Við ástundum fagleg vinnubrögð og hagsýni í stjórn skólans og ákvarðanatöku. Við byggjum fagmennsku okkar m.a. á námskrám, áætlunum, ferlum og gæðaviðmiðunum.

Framsækni

Við erum fljót til nýjunga, leitum tækifæra og bjóðum nemendum nýjar lausnir. Við bregðumst við þörfum atvinnulífsins fyrir vel menntað starfsfólk og vinnum með fyrirtækjum og hagsmunaaðilum að þróun námsbrauta. Við göngum á undan í innleiðingu nýjunga í kennsluháttum og þróun námsskráa og nýrra námsbrauta í takt þróun í atvinnulífinu.



Employees

Hildur Ingvarsdóttir

Skólameistari
hi@tskoli.is

Kort

c