Verslunin Árborg ehf

Verslunin Árborg á sér 27 ára viðskiptasögu og er að öllum líkindum fyrsta fyrirtækið sem notar nafnið “Árborg”. Þann 1. apríl árið 1988 tóku hjónin Gunnar Egilsson og Sigrún Halldórsdóttir við rekstrinum og hafa rekið Verslunina Árborg síðan, fyrst í samstarfi við Olíufélagið hf/ESSO til ársins 2007 ,og síðan N1 ehf . Árið 1994 var húsið stækkað. Í kjölfarið var stofnað grill inni í versluninni með veitinga og vínveitingaleyfi. Veitingarnar og þá sérstaklega hamborgararnir hafa notið mikilla vinsælda en þess má geta að Gunnar vann sem matreiðslumaður á árum áður. Þann 17. júní árið 2000 kom jarðsjálfti sem reið yfir allt Suðurland með mikilli eyðileggingu og var Verslunin Árborg þar ekki undanskilin,töluverðar skemmdir urðu innannstokks í versluninni sem sjá má af myndum hér á síðunni. Árið 2006 var öllu breytt innanstokks í Árborg. Veitingastaðurinn fékk yfirhalningu ásamt því að flestar innréttingar voru endurnýjaðar og uppröðun endurskipulögð. Í dag er gott vöruúrval í versluninni og hægt er að fá flestar matvörur . Boðið er upp á úrval veitinga af matseðli ásamt nýbökuðu bakkelsi á hverjum degi. Starfsfólk okkar er ávallt reiðubúið að veita upplýsingar um afþreyingu á svæðinu.

Employees

Gunnar Egilsson

Sigrún Halldórsdóttir

Kort

c