Mynd af SAH afurðir ehf

SAH afurðir ehf

Sagan

SAH Afurðir ehf. var stofnað 1. janúar 2006. Stofnendur og helstu hluthafar eru Sölufélag Austur Húnvetninga sem á 51% og Kjarnafæði sem á 36%. Bændum og starfsmönnum hefu verið boðið að kaupa 13% og er meirihluti þess þegar seldur. Heildarhlutafé er 188 m.kr.

Markið SAH Afurða er að veita bændum úrvalsþjónustu á samkeppnishæfu verði hvað varðar slátrun og sölu kjötafurða, auk þess að greiða hluthöfum sínum arð.

SAH Afurðir byggja á traustum grunni Sölufélags Austur Húnvetninga en fyrsta sláturhús þess félags var byggt á Blönduósi 1908 og frá þeim tíma hefur verið samfelld starfsemi á Blönduósi á þessu sviði.

Starfsemi

Slátrað er sauðfé af svæði sem nær frá Kelduhverfi í austri til Dýrafjarðar í vestri, ásamt fé úr Borgarfirði, Dölum og Þingvallasveit. Megin starfssvæði SAH Afurða er samt sem áður norðan og vestanvert landið.

Nautgripum og hrossum er slátrað eftir því sem framboð gefur tilefni til. Samhliða rekstri sláturhúss er rekin kjötvinnsla sem stofnuð var 1963, þar sem megináherslan er lögð á grófvinnslu fyrir aðrar kjötvinnslur.

Gæðakerfi

SAH Afurðir hefur virkt HACCP gæðakerfi sem tryggir öryggi og heilnæmi afurða félagsins og að réttum framleiðsluháttum sé fylgt í hvívetna. SAH Afurðir hefur einnig leyfi til útflutnings dilkakjöts, hrossakjöts og innmats úr sauðfé á evrópumarkað.

Employees

Valgerður Hilmarsdóttir

Rekstrarstjóri

Kort

c