Mynd af Sumarhús Akurgerði

Sumarhús Akurgerði

AKURGERÐI II - ÖLFUSI

Við höfum til leigu 3 sumarhús á skemmtilegum stað í Ölfusinu undir hlíðum Ingólfsfjalls. Húsin eru öll vel búin með fallegu útsýni yfir sveitina. Nærri allri þjónustu en þó í kyrrð og næði sveitarinnar.

Hús og búnaður: Húsin eru 54m² með 26m² svefnlofti. Þau skiptist í tvö svefnherbergi annað með hjónarúmi og hitt kojum. Auk þess er svefnloft með dýnum. Niðri er stofa, eldhús með borðkróki og baðherbergi með sturtu. Svefnpláss, sængur og koddar eru fyrir 8. Bústaðurinn er með fríu Interneti. Ekki er séð fyrir sængurverum. Við bústaðinn er heitur pottur og stór verönd með húsgögnum og gasgrilli.

Takið með ykkur: lín, handklæði, diskaþurrkur og borðklúta.

Umgengni og frágangur: Leigjandi skal ganga vel um og ræsta húsið við brottför. Ræstingaráhöld/vörur eru í húsinu.
Hægt er að kaupa þessa þjónustu af eigendum.

Umsjónarmaður er Guðmundur Ingvarsson Akurgerði II símar 483-4449 og 893-9814

Lyklar eru afhentir í Akurgerði II símar 483-4449 og 893-9814

Gæludýr: Leyfilegt er að hafa með sér heimilisdýr í húsinu en gæta verður að hreinlæti.

GPS Hnit. 63°58,503'N21°4,966'W(ISN93:398,006,387.416)

Employees

Guðmundur Ingvarsson

Framkvæmdastjóri
c