Mynd af Björgun-Sement

Björgun-Sement

Lógo af Björgun-Sement

Telephone 563 5600

Víðinesvegur 22 , 162 Reykjavík

kt. 5602695369

Árið 2025 sameinuðust Björgun og Sementsverksmiðjan undir einu nafni: Björgun-Sement. Fyrirtækin hafa bæði verið dótturfélög Eignarhaldsfélagsins Hornsteins frá árinu 2010 en rætur þeirra ná allt aftur til ársins 1952.

Saga fyrirtækjanna er saga trausts, þekkingar og framþróunar sem hefur markað djúp spor í íslensku atvinnulífi. Með sameiningunni mætast tvær sterkar stoðir í eitt fyrirtæki sem stendur betur en nokkru sinni fyrr til að mæta þörfum viðskiptavina og samfélagsins til framtíðar.

Starfsemi Björgunar-Sements felst meðal annars í:

  • Framleiðslu hágæða steinefna úr námum á sjó og landi.
  • Innflutningi og dreifingu á sementi frá Heidelberg Materials í Noregi.
  • Dýpkunarframkvæmdum og efnistöku úr sjó með sérútbúnum dæluskipum, Álfsnesvík og Sóley.
  • Námuvinnslu og afhendingu steinefna fyrir mannvirkjagerð um allt land.
  • Hafnarþjónustu þar sem fram fer margvísleg lestun og losun hráefna.

Sameinað afl Björgunar-Sements byggir á hringrásarhugsun, ábyrgri auðlindanýtingu og skýrum gæðaviðmiðum. Með umhverfisyfirlýsingum, lágmörkun kolefnisspors, vottuðu stjórnkerfi og ströngu gæðaeftirliti tryggjum við áreiðanleg steinefni fyrir sjálfbærari mannvirki framtíðarinnar.

c