Bón og þvottastöðin ehf

Bón- og þvottastöðin á Grjóthálsi 10 við Vesturlandsveg er afkastamikil bílaþvottastöð sem býður upp á frábæra þjónustu.
Stöðin er staðsett við einn fjölfarnasta veg Reykjavíkur og því afar hentugt fyrir bílaeigendur að renna við með bílinn í þvott þegar þeir eiga leið hjá.
Boðið er upp á svokallaðan 8 þrepa þvott þar sem bílarnir fá alhliða hreinsun á aðeins 5 mínútum.
Bón- og þvottastöðin var fyrsta sjálfvirka bílaþvottastöðin á Íslandi. Lengst af var stöðin í Sóltúni eða hátt í 40 ár áður en hún var opnuð á Grjóthálsi 10 þar sem hún stendur enn.

Employees
Ari Rafn Vilbergsson
Framkvæmdastjóri