Mynd af Gróðrarstöðin Storð ehf

Gróðrarstöðin Storð ehf


Gróðrastöðin Storð er flutt á Ferjuveg 1. Laugarási í Bláskógarbyggð.

Gróðrarstöðin Storð framleiðir og selur allar gerðir garðplantna, tré, runna, rósir, fjölærar plöntur, sumarblóm og matjurtir. Stöðin framleiðir um 2-300 tegundir og yrki af trjám, runnum og rósum, um 500 tegundir og yrki af fjölærum plöntum, um 50 tegundir sumarblóma og allar algengustu tegundir matjurta. Sérstök áhersla er lögð á að framleiða heilbrigðar og hraustar plöntur sem standast álag íslenskrar veðráttu. Auk hinna hefðbundnu tegunda sem seldar eru, koma inn nýjar og spennandi tegundir á hverju ári. Í söluskála stöðvarinnar er boðið upp á fjölbreytt úrval af kerjum og pottum, áburði, mold og vikri og öðru því sem tilheyrir garðræktun.

Stór hluti starfsfólks er fagmenntaður í garðyrkju en auk þess kemur inn hópur af skólafólki á sumrin. Starfsfólk stöðvarinnar er alltaf boðið og búið að aðstoða viðskiptavini sína og veita þeim faglega ráðgjöf um plöntur og ræktun þeirra

Employees

Vernharður Gunnarsson

Framkvæmdastjóri
c