Mynd af Verslunarmannafélag Suðurlands

Verslunarmannafélag Suðurlands

Saga félagsins

Verslunarmannafélag Suðurlands var stofnað 15. maí 2000 að Hlíðarenda Hvolsvelli upp úr félögunum Verslunarmannafélagi Rangárvallasýslu og Verslunarmannafélagi Árnessýslu sem bæði höfðu starfað um nokkra áratugi. Forustumenn félaganna komust að samkomulagi um að sameina þau í eitt félag, öflugra og aflmeira. Þessi tvö félög hafa á undanförnum árum átt með sér samstarf á sviði félags, og framfara mála og verið á verði um réttindabaráttu meðlima sinna.

Þennan fund sóttu fjölmargir félagar ásamt formanni Landssambands Íslenskra Verslunarmanna. Fundurinn kaus stjórn sem var þannig skipuð:

Formaður: Gunnar Kristmundsson, Selfossi

Varaformaður: Kristján Hálfdánarson, Hvolsvelli

Gjaldkeri: Ölver Bjarnason, Selfossi

Ritari: Guðný Ósk Pálmadóttir, Selfossi

Meðstjórnendur: Unnur Þórðardóttir, Hellu, Anna Sæmundsdóttir, Hvolsvelli og Jóna Jónsdóttir, Selfossi

Stjórn og trúnaðarmannaráð verða kjörin eins og lög félagsins gera ráð fyrir. Stjórnin ber m.a. ábyrgð á að lögum þess sé framfylgt. Hún sér jafnframt um fjármál félagsins og að fylgjast með öllu því sem gæti komið félaginu til heilla í framtíðinni.


Employees

Gils Einarsson

Formaður
gils@vms.is
c