Mynd af Sparisjóður Suður-Þingeyinga

Sparisjóður Suður-Þingeyinga


SPARISJÓÐURINN er sameiginlegt vörumerki allra sparisjóða á Íslandi.

Stefna og megingildi
Hlutverk sparisjóðanna er að treysta fjárhagslega velferð viðskiptavina sinna með því að veita persónulega þjónustu í fjármálum, sem einkennist af fagmennsku og umhyggju. Sparisjóðurinn er með víðtækt dreifinet afgreiðslustaða sem skapar sterka heild til hagsbóta fyrir einstaklinga og byggðir landsins.

Starfsfólk
Lykillinn að árangursríku starfi Sparisjóðsins felst í þjónustuvilja starfsfólks og þeirri þekkingu, reynslu og hæfni sem það býr yfir. Einlægni, traust og stuttar boðleiðir einkenna samskipti viðskiptavina og starfsfólks. Með virku flæði upplýsinga, miðlun þekkingar og stjórnunarháttum sem hvetja til frumkvæði og ábyrgðar, er sjálfstæði, metnaður og faglegur þroski starfsmanna efldur.

Viðskiptavinir
Sparisjóðurinn leggur áherslu á að veita viðskiptavinum sínum víðtæka og persónulega þjónustu sem lagar sig að þörfum hvers og eins. Við leggjum upp úr að viðskiptavinir fái ávallt það besta sem í boði er hverju sinni, því það er okkur kappsmál að hámarka ánægju viðskiptavina. Þarfir einstaklinga, fjölskyldna og minni fyrirtækja njóta sérstakrar athygli sem endurspeglast í þjónustuframboði og áherslum í þróun.

Frá upphafi mælinga á Íslensku ánægjuvoginni hafa viðskiptavinir Sparisjóðsins mælst ánægðustu viðskiptavinir fjármálafyrirtækja á Íslandi.
Að mælingu Íslensku ánægjuvogarinnar standa: Capacent Gallup, Samtök iðnaðarins og Stjórnvísi.

Þegar skoðaðar eru einkunnir banka og sparisjóða á einstökum þáttum ánægjuvogarlíkansins má sjá að Sparisjóðurinn er með hæstu einkunn á öllum þáttunum sem mældir eru (ímynd, væntingar, vörugæði, þjónustugæði, virði, ánægja og tryggð). Það er því óhætt að segja að viðskiptavinir Sparisjóðsins eru þeir ánægðustu.

Stofnfjáreigendur
Stofnfjáreigendur eru Sparisjóðnum mikilvægir og lögð er áhersla á langtímaarðsemi.

Samfélagið
Sparisjóðurinn lætur sig samfélagaslega ábyrgð varða með því að taka virkan þátt í mannlífinu á landsvísu og á hverjum stað fyrir sig.


Opnunartími afgreiðslunnar á Laugum, Húsavík er mánud.- fimmtud. frá 10:00-16:00. og föstud. frá kl. 10:00-15:00

og Mývatn / Fyrsta og þriðja miðvikudag í hverjum mánuði.


Employees

Örn Arnar Óskarsson

Sparisjóðsstjóri
spthin@spthin.is

Kort

c