Welcome hótel in Vík

Hótel Lundi er vel staðsett i hjarta Víkur, í göngufæri frá ströndinni, þar sem að hinir frægu Reynisdrangar blasa við. Öll þjónusta er í göngufæri frá hótelinu, s.s. matvörubúð, sundlaug, upplýsingamiðstöð og banki.
Hótel Lundi býður upp á 22 herbergi með baði. 12 af þessum 22 voru byggð árið 2011 og eru öll nýju herbergin rúmgóð og fallega innréttuð með tilvísanir í fallega náttúru umhverfisins.
Veitingasalurinn okkar var einnig stækkaður og tekur núna 65 manns í sæti. Yfir háannatímabilið (júní-ágúst) bjóðum við upp á glæsilegan A La Carte menu.
Veitingasalurinn er opin ávallt fyrir hótelgesti utan háannatíma og bjóðum við þá upp á einfaldan matseðil og heimatilbúin mat.
Hópamatseðill er í boði allt árið.
Frí nettenging er fyrir alla gesti.
Employees
Ragnheiður Hauksdóttir
Hótelstjóri