Mynd af Símenntun á Vesturlandi

Símenntun á Vesturlandi

Markmið með starfsemi Símenntunar er að efla og styrkja íslenskt atvinnulíf og samfélag með endur- og símenntun sem tekur mið af þörfum atvinnulífs og einstaklinga. Sérstaklega skal stofnunin huga að þörfum íbúa á Vesturlandi í þessu sambandi.

Hlutverk Símenntunar er að auka þekkingu og stuðla að bættum búsetuskilyrðum á Vesturlandi með því að greina og svara menntunarþörf og hvetja til símenntunar í samvinnu við atvinnulíf og íbúa svæðisins. Símenntun er miðja þróunar og miðlunar þekkingar fullorðinna á svæðinu og fyrsti kostur íbúa og atvinnulífs í öflun hennar.

Símenntun tengir saman þá sem vinna að miðlun og öflun þekkingar fullorðinna á svæðinu og stendur fyrir ýmsu námsframboði í fullorðinsfræðslu, auk náms- og starfsráðgjafar og ráðgjafar og greiningar á fræðsluþörf innan fyrirtækja og stofnana. Símenntun þjónustar einnig fjarnema í háskólanámi, svo þeir geti tekið próf í heimabyggð.

Símenntun á aðild að Leikn, samtökum fullorðinsfræðsluaðila á Íslandi og Símennt, samtökum fræðslu- og símenntunarmiðstöðva

Símenntun er stofnaðili að Starfsendurhæfingu Vesturlands og Gleipni nýsköpunar- og þróunarsetri á Vesturlandi.

c