Mynd af RST Net ehf

RST Net ehf



Ný framkvæmdir

◦Orkuver, virkjanir, iðjuver - RST Net tekur að sér í samstarfi við aðra, alla framkvæmd við uppsetningu búnaðar í rafmagns- og vélahluta orku- og iðjuvera.

◦Aðveitustöðvar - RST Net tekur að sér sjálfstætt eða í samstarfi við aðra, útvegun búnaðar og alla framkvæmd við uppsetningu hans við byggingu eða breytingar aðveitustöðva.

◦Loftlínur, jarðstrengir - RST Net tekur að sér sjálfstætt eða í samstarfi við aðra, útvegun búnaðar og alla framkvæmd við uppsetningu og tengivinnu dreifi- og flutningslína og lagningu há- og lágspennujarðstrengja.

◦Almennar raflagnir - RST Net tekur að sér sjálfstætt eða í samstarfi við aðra, alla almenna raflagnavinnu í iðnaðarhúsnæði, verksmiðjum, dælustöðvum og íbúðarhúsnæði.

Sérhæft rafmagns- og vélaverkstæði

Rafmagnsverkstæði RST Nets sérhæfir sig í viðgerðum og upptektum á afl- og dreifispennum sem og öðrum háspennubúnaði, s.s. rafmótorum, spennustillum og aflrofum.

Þjónusta við afl- og dreifispenna tekur til þátta eins og:

◦upptektar á þrepaskiptum

◦galvanhúðunar / málunar spennahylkja og kæla

◦meðhöndlunar spennaolíu

◦vindingavinnu

◦mælinga og prófana

Tenging og víring búnaðar í stjórnskápum fyrir aðveitustöðvar og orkuver er einnig unnin á verkstæðinu.

Á vélaverkstæði RST Nets er unnin ýmis vinna sem tengist verkefnum fyrirtækisins í virkjunum, aðveitustöðvum og iðjuverum. Þar er m.a. um að ræða smíði á stálvirki, undirstöðum og upptekt á vélahlutum.





Employees

Þórarinn Kristján Ólafsson

Rafmagnsverkfræðingur

Arnhildur Ásdís Kolbeins

Fjármálastjóri

Kristján Þórarinsson

Rafmagnstæknifræðingur

Bjarni Jónsson

Rafmagnstæknifræðingur

Kristófer Guðni Kolbeins

Tölvunarfræðingur

Steinn Þórhallsson

Þjónustustjóri

Sigmundur Jónsson

Framkvæmdastjóri

Trademarks and commissions

BAUR Prüf- und Messtechnik
Sérhæfð prófunar- og mælitæki fyrir strengbilanir, háspennuprófanir og torleiðiefnaprófanir.
Moser-Glaser
Einangruð skinnukerfi DURESCA og TIRESCA
c