Mynd af Kjölur Stéttafélag starfsmanna í almannaþjónustu

Kjölur Stéttafélag starfsmanna í almannaþjónustu

Hvað gerir Kjölur?

Kjölur er stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu sem varð til við sameiningu Félags opinberra starfsmanna í Húnavatnssýslum, Starfsmannafélags Akureyrarbæjar, Starfsmannafélags Borgarbyggðar, Starfsmannafélags Dalvíkurbyggðar og Starfsmannafélags Siglufjarðarkaupstaðar, á fundi í Munaðarnesi 15. maí 2004. Þann 17. febrúar 2014 var samþykkt á aðalfundi Starfsmannafélags Skagafjarðar að sameinast Kili stéttarfélagi og tók sameiningin strax gildi.

KJÖLUR stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu er aðildarfélag BSRB.

Tilgangur félagsins er að vera í forsvari fyrir einstaklinga við gerð kjarasamninga og vinna að öðrum hagsmunamálum, vernda réttindi félaganna og beita sér gegn hvers konar misrétti í launagreiðslum og starfskjörum. Félagsmenn eru um 1050. Konur eru 70% félagsmanna.
Félagið skiptist í tvo hluta, opinberan hluta og almennan hluta.

Til opinbera hlutans teljast:

  • Félagsmenn í þjónustu ríkisins og sveitarfélögum sem ekki eiga aðild að öðru stéttarfélag
  • Félagsmenn í vinnu hjá sjálfseignarstofnunum sem starfa í almannaþágu samkvæmt lögum.


Til almenna hlutans teljast:

  • Félagsmenn sem vinna hjá fyrirtækjum sem starfa í almannaþágu og voru áður stofnanir sveitarfélaga.

Samkvæmt lögum Kjalar verða þeir sem taka laun eftir kjarasamningi þess sjálfkrafa félagsmenn og greiða gjald til þess sem er 1% af öllum launum. Ef viðkomandi vill ekki vera í félaginu getur hann sagt sig úr því, en þarf eftir sem áður að greiða gjald til þess samkvæmt lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna.

Félagsmaður Kjalar stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu, hefur m.a. eftirfarandi réttindi með veru sinni í félaginu:

  • haft áhrif á umhverfi þitt með að taka þátt í félagsstarfinu
  • tekið þátt í námskeiðahaldi á vegum félagsins,
  • komið með ábendingar um starfsemi félagsins til stjórnar félagsins
  • nýtur kjarasamninga félagsins
  • nýtur stofnanasamnings sem gerður er á viðkomandi stofnun (ríkið)
  • nýtur veikindaréttar og fæðingarorlofs
  • á rétt á úthlutun úr styrktarsjóði í fæðingarorlofi
  • á rétt á að kjósa trúnaðarmann og stjórn
  • á rétt á að dvelja í orlofshúsum félagsins
  • á rétt á að taka þátt í því félagsstarfi sem boðið er upp á
  • á rétt á úthlutun ú fræðslusjóði Kjalar
  • á rétt á úthlutun úr styrktarsjóði BSRB
  • á rétt á starfsnámi á vegum samningsaðila
  • á sér málsvara í réttinda- og álitamálum
  • vinnur sér inn réttindi hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins eða Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda eða Lífeyrissjóði starfsmanna sveitarfélaga
  • á rétt á framlagi frá atvinnurekanda leggi hann til viðbótarframlag í séreignarlífeyrissjóð

    Svo er alltaf heitt kaffi á könnunni ef þú á leið framhjá skrifstofu okkar!

Employees

Arna Jakobína Björnsdóttir

Formaður
jakobina@kjolur.is

Margrét Árnadóttir

Skrifstofa
margret@kjolur.is
c