Landvélar ehf

Hjá Landvélum færð þú allt sem við kemur vökva- og loftkerfum.
Landvélar leggur mikið uppúr því að aðstoða viðskiptavini sína sem frekast er unnt. Sérlausnir af ýmsu tagi eru útbúnar til að leysa þau vandamál sem upp koma. Til að framkvæma það þarf mikið úrval af íhlutum fyrir slík kerfi.
Í versluninni eru seldir íhlutir fyrir vökva- og loftkerfi af öllum gerðum allt frá lagnaefni til stórra dæla eða mótora. Þessar vörur eru fluttar inn frá viðurkenndum aðilum ásamt því að Landvélar framleiða hluta af þeim ryðfría fittings sem seldur er í versluninni. Að auki eru seldar slöngur af öllum gerðum, rafmótorar, þéttiefni og margt fleira. Reyndir sölumenn sjá til þess að viðskiptavinurinn fær það sem honum hentar best.
Tæknimenn eru til staðar til að aðstoða þig við lausnir á vandmálum. Auk þess að veita tæknilegar upplýsingar gefa þeir tilboð í stóra sem smáa verkþætti, allt frá samsetningu á dælustöðvum og smíðum á tjökkum upp í uppsetningu á stórum kerfum. Einnig leggja tæknimenn sig í líma við að skaffa varahluti og nýja hluti í stað úreltra.
Á verkstæðinu eru smíðaðir vökva- og lofttjakkar af öllum stærðum og gerðum ásamt því að settar eru saman dælustöðvar af ýmsum stærðum. Stór þáttur í umsvifum verkstæðisins eru viðgerðir á tjökkum. Til staðar á verkstæðinu eru sjálfvirkar spóntökuvélar sem auka til muna möguleika Landvéla á að taka að sér sérsmíðar. Verkstæðið er mannað reyndum rennismiðum sem eru tilbúnir að takast á við flóknustu verkefni.
Landvélar ræður einnig yfir dælu- og röraverkstæði. Þangað er hægt að senda til viðgerðar vökvabúnað af öllum gerðum. Ekki skiptir máli hvort Landvélar hafi umboð yfir tilteknu tæki heldur er reynt að þjónusta viðskiptavininn eins fljótt og hægt er. Á röraverkstæðinu fást útbúin rör af ýmsum toga. Mest er um smíði af bremsu- og diesel rörum fyrir skip og bíla.
Employees
* Þjónustusími utan afgreiðslutíma: 892-2424
Ingvar Bjarnason
Framkvæmdastjóri / Véltæknifræðinguringvar@landvelar.is
Snæþór U. Bergsson
VerslunarstjóriSigurjón Á. Einarsson
FjármálastjóriÖrn Arnarson
InnkaupastjóriTrademarks and commissions
ABUS
Brúkranar
Aignep
Koparfittings
Akerströms
Fjarstýringar
Allweiler
Dælur
Arlon
Síur
Atos
Vökvadælur
Bosch Rexroth
Vökvabúnaður
Bowman
Olíukælar
Brevini
Plánetugírar
Casappa
Stjórnlokar
Cejn
Hraðtengi
Cohline
Bremsu- og vökvastýrisfittings
Contitech
Slöngur
Depac
Þétti
Ebro
Mælibúnaður
Faster
Hraðtengi
Flir
Mælibúnaður
Flotec
Vatndælur
Fluke
Mælibúnaður
Fogel
Smurkerfi
Hamworthy
Vökvadælur, Mótorar og lokar
Hawe
Vökvalokar
Hiflex
Slöngur
H.M.F.
Kranar
Legris
Lofthraðtengi
Mecman
Loftbúnaður
Netzsch
Mónódælur
Nordhydraulik
Stjórnlokar
Norgren
Lofthreinsibúnaður
Novo Rotors
Monodælur
Nummi
Sturtutjakkar
Oleo star
Vökvalokar
Omal
Loftstýrðir kúlulokar
Parker
Síur
Pleiger
Vökvamótorar
Prince
Kex
Rexroth
Vökvadælur, Mótorar, Lokar
Roflex
Hraðtengi
Saer
Vatnsdælur
Safematic
Smurkerfi
Sai
Vökvamótorar
Sauer sunstrand
Dælur
SKF
Legur, Þéttingar, Drifbúnaður, Smurkerfi
Spanset
Stroffur
Stanley
Verkfæri og handverkfæri
Straub
Röratengi
Sun
Vökvalokar
Sundstrand-Turolla
Vökvadælur
Sunfab
Stimpildælur
Taumtron
Vogir
Tema
Hraðtengi
UCC
Síur og ástengi
Walterscheid
Kónafittings
Walvoil
Vökvalokar
