Mynd af Líkamsræktin Bjarg ehf

Líkamsræktin Bjarg ehf

Lógo af Líkamsræktin Bjarg ehf

Telephone 4627111

Bugðusíða 1, 603 Akureyri

kt. 4609002980

Bjarg líkamsrækt

Bugðusíðu 1
603 Akureyri
Við erum staðsett í þorpinu við hliðina á Glerárkirkju.

Á Bjargi eru 3 hóptímasalir, rúmgóður tækjasalur, glæsilegt útisvæði með stórum palli til að æfa á, tveimur 10 manna heitum pottum, eimgufubaði og góðri sólbaðsaðstöðu.

Tvö búningsherbergi, 6 manna heitur pottur inni í fallegu umhverfi og einstaklega rúmgóð snyrtiaðstaða með blásurum og speglum allan hringinn.

Haustið 2013 færðum við tækjasalinn á neðri hæðina og bættum við stórum gluggum og hurð að útisvæði. Á sumrin tengist því glæsilega útiaðstaðan tækjasalnum betur og við setjum út hluta af upphitunartækjum og fleira.

Á efri hæðinni eru tveir salir með rennihurð á milli. Í innri salnum eru spinninghjólin 40 en 15 Gravitybekkir, slatti af tækjunum sem voru í tækjasalnum, róðrarvél, fullt af lóðum og bjöllum og stóru boltarnir í þeim ytri. Opnað verður á milli sala í stærri tímum eins og Zumbu, Ólatíma og Body Pumpi. Stiginn er svo eitt vinsælasta æfingatækið.

Heiti salurinn er yndislega volgur allan daginn og opinn fyrir alla okkar viðskiptavini til að gera æfingar, teygja og slaka. Þar er ljúf tónlist og rökkur. Við kennum alla heita tíma í þessum sal eins og Hot yoga, Hot Fit, Body Balance.

Employees

Tryggvi Kristjánsson

Framkvæmdastjóri
bjarg@bjarg.is
c