Álafoss ehf

Verslun okkar í kvosinni Mosfellsbæ er opin alla virka daga frá kl. 9 til kl.18 og laugardaga frá kl.10 til kl.16. Í Álafoss er að finna mikið úrval af íslenskum ullarvörum, allt frá hefðbundnum handprjónuðum lopapeysum, hinum geysivinsælu Álafoss teppum yfir í mikið úrval af allskyns lopa og bandi og öðrum vörum tengdum prjónaskap. Að auki má finna mikið af minjagripum og listaverkum frá hinum ýmsu lista- og handverksfólki sem flest hver eru á sinn hátt tengd íslenskri náttúru. Álafossbúðin er staðsett í gömlu ullarverksmiðjunni og þar hefur verið sett upp lítið minjasafn þar sem skoða má sögulegar ljósmyndir og vélar til prjónaskaps, m.a. sokka-prjónavél frá 1930, sem gefur góða innsýn í sögu og menningu ullariðnarins á Íslandi.

Employees

Guðmundur Arnar Jónsson

Framkvæmdastjóri
addi@alafoss.is
c