Mynd af Hreyfill svf

Hreyfill svf

Lógo af Hreyfill svf

Telephone 5885522

Fellsmúli 26, 108 Reykjavík

kt. 6401693549

Hreyfill hefur fullkomnasta þjónustukerfi allra leigubílastöðva á Íslandi. Það þýðir styttri afgreiðslutími og hljóðlátari ferðir, því allar sendingar í bílana eru í gegnum tölvu en ekki talstöð.

Debet og kreditkort eru höndluð í gegnum tölvukerfi Hreyfils sem þýðir meira öryggi í kortafærslum, því tryggt er að færslur á kort verða einungis ef skilyrði bíltölvunnar eru uppfyllt. Þannig passar tölvan t.d. upp á að ekki verði til færsla nema reikningur sé skrifaður úr tölvunni.

Ath heimildir á kort sem sóttar hafa verið en ekki notaðar, birtast í heimabanka en eru sjálfvirkt bakfærðar eftir 9 daga. Einungis heimild sem krafa/reikningur var gerð á er notuð og stendur áfram.

Sundurliðuð kvittun er prentuð beint úr bíltölvunni og inniheldur upplýsingar um pöntun, hafi verið pantað hjá stöðinni.

Viðskiptakort Hreyfils eru vinsæl hjá fyrirtækjum því þau einfalda bókhaldið, með því að skrá ferðirnar rafrænt í reikning.

Sundurliðaðir reikningar eru prentaðir út hjá þeim sem eru í reikningsviðskiptum og nota rafrænar færslur.

TAXA NÚ eru sérhæfð tæki sem nýtast fyrirtækjum sem oft þurfa að panta bíla. Með því einfaldlega að ýta á hnapp sendir tækið pöntun beint í bókunarkerfi Hreyfils, og því þarf ekki að bíða eftir að afgreiðslu á síma. Athugið að tækið pantar eftir forskrift.

Þjónustusími leigubíla:

Sími: 588-5522

Fax: 588-5525

Skrifstofa: Sími: 5-885523, 5-885524, Fax: 5-885526

Almennt starfsfólk um 21 manns, bifreiðastjórar: 370

Starfssvið:

Leigubifreiðaþjónusta.

Employees

Haraldur Axel Gunnarsson

Framkvæmdastjóri

Eva Björg Guðmundsdóttir

Skrifstofustjóri

Vignir Þröstur Hjálmarsson

Deildarstjóri fjarskipta- og tölvusviðs
c