Mynd af Fiskvinnslan Drangur ehf / Strandaskel

Fiskvinnslan Drangur ehf / Strandaskel

Fiskvinslan Drangur ehf. var stofnuð 27. janúar árið 2000 af útgerðarmönnum á Drangsnesi ásamt Kaldrananeshreppi, Kaupfélagi Steingrímsfjarðar, Byggðastofnun, einstaklingum á Drangsnesi og öðrum sem létu sig málið varða. Hluthafar voru alls 31.


Fiskvinnslan Drangur ehf. er framleiðslufyrirtæki í matvælaiðnaði sem vinnur afurðir úr bolfiski og þjónustar báta sem landa afla sínum á Drangsnesi.

Helstu afurðir fyrirtækisins eru saltaður flattur þorskur, léttsöltuð fryst þorskflök og -bitar, fersk og frosin ýsuflök, ásamt söltuðum grásleppuhrognum. Fyrirtækið er staðsett á Drangsnesi við Steingrímsfjörð.

Það er stefna Fiskvinnslunnar Drangs ehf. að afurðir fyrirtækisins uppfylli ströngustu kröfur um gæði, hollustu og heilbrigði. Til þess að ná þessu markmiði er lögð áhersla á skilvirkt gæðakerfi og öfluga fræðslu og þjálfun starfsfólks.


Employees

Óskar Torfason

Framkvæmdastjóri
c