
Náttúrustofa Vestfjarða

Náttúrustofa Vestfjarða hóf starfsemi í ársbyrjun 1997. Hún er alhliða rannsóknar- og þjónustustofnun í náttúrufræðum á Vestfjörðum. Náttúrustofan starfar eftir lögum um Náttúrufræðistofnun Íslands og Náttúrustofur og er rekin af sveitarfélögum á Vestfjörðum með stuðningi ríkisins. Verkefni náttúrustofunnar eru öflun upplýsinga um náttúru Vestfjarða og gera þær aðgengilegar þeim sem á þurfa að halda. Náttúrustofa Vestfjarða tekur að sér margvísleg verkefni á þessu sviði fyrir; sveitarfélög, stofnanir eða einkaaðila.
Hlutverk stofunnar
a. að safna gögnum, varðveita heimildir um náttúrufar og stunda vísindalegar náttúrurannsóknir, einkum í þeim landshluta þar sem náttúrustofan starfar,
b. að stuðla að æskilegri landnýtingu og náttúruvernd og veita fræðslu um umhverfismál og náttúrufræði og aðstoða við gerð náttúrusýninga,
c. að veita náttúruverndarnefndum á starfssvæði stofunnar upplýsingar og ráðgjöf á verksviði stofunnar samkvæmt ákvörðun stjórnar náttúrustofu hverju sinni,
d. að veita ráðgjöf, sinna rannsóknum og sjá um vöktun gegn greiðslu á verksviði stofunnar að beiðni sveitarfélaga, ríkis eða stofnana þeirra, einstaklinga, fyrirtækja eða annarra aðila,
e. að annast almennt eftirlit með náttúru landsins, sbr. 7. gr. náttúruverndarlaga, nr. 44/1999, einkum í þeim landshluta þar sem náttúrustofan starfar; Náttúruvernd ríkisins skal gera samning um slíkt eftirlit við náttúrustofur sem staðfestur er af ráðherra. Heimilt er náttúrustofu að gerast aðili að sýningarsafni, en fjárhagur slíks safns og stofunnar skal vera aðskilinn.
Employees
Böðvar Þórisson
Hulda Albertsdóttir
Forstöðumaður