Mynd af TG raf ehf

TG raf ehf



TG raf er alhliða rafverktaki sem býður upp á faglega þjónustu við útgerðir, verksmiðjur, byggingarverktaka og önnur fyrirtæki. Lögð er mikil áhersla á vönduð vinnubrögð og að skila af sér verkum sem starfsmenn TG raf geta verið stoltir af.

Á síðustu árum höfum við hjá TG raf aðstoðað viðskiptavini okkar m.a. við þróun inn á stýringar og sjálfvirkni. Áhersla hefur verið lögð á heildarlausn í hverju verkefni fyrir sig þar sem teymi innan fyrirtækisins vinnur að hönnun, teikningu og raflögn ásamt því að sama teymi sinnir viðhaldi í framhaldinu. Mikil hagræðing skapast þannig við vinnu og öll þekking viðhelst innan vinnuteymis í gegnum hönnun, teikningu, raflögn og áframhaldandi viðhaldsþjónustu.



TG raf byggir á tveimur elstu rafverktökum í Grindavík en þann 1. apríl 2015 sameinuðust fyrirtækin TG raf ehf. og HH-rafverktakar ehf. undir nafni þess fyrrnefnda. Við sameininguna varð til ein sterk heild með yfir 20 rafvirkjum og aukinni sérhæfingu.

Sérhæfing TG raf hefur legið í viðhaldsþjónustu og breytingum í skipum en einnig í þjónustu við höfn, fiskvinnslu og verksmiðjur ásamt því að aðstoða viðskiptavini sína við þróun inn á stýringar og sjálfvirkni. Eftir sameiningu hefur gefist tækifæri til að styrkja tæknideild félagsins verulega en tæknideild og skiparafmagn hefur nú verið sérgreint í deildir innan fyrirtækisins.

Þjónusta HH-rafverktaka hefur verið almenn rafþjónusta til fyrirtækja og raflagnir í nýbyggingar. Eftir sameiningu hefur gefist tækifæri til að styrkja starfsemina til muna en almennar raflagnir hafa nú verið skilgreindar í sérstaka deild innan fyrirtækisins.

Við vonum að viðskiptavinir okkar taki þessum breytingum með jákvæðum hug. Markmið okkar verður áfram að veita okkar viðskiptavinum persónulega og faglega þjónustu og vera leiðandi í heildarlausnum.



Employees

Áslaug Rós Guðmundsdóttir

Framkvæmdastjóri
tgraf@tgraf.is
c