Mynd af Bílaspítalinn ehf

Bílaspítalinn ehf



Bíllinn þinn er í góðum höndum hjá okkur - og við vitum að það er mikilvægt að fá hann viðgerðan samdægurs.

Bílaspítalinn er alhliða viðgerða- og sprautuverkstæði með BGS gæðavottun frá Bílgreinasambandinu.

Við bilanagreinum flestar gerðir bifreiða með nýjustu tölvutækni.

Bílaspítalinn sinnir véla- og rafmagnsviðgerðum - sem og réttinga- og sprautuverkefnum. Algengar viðgerðir eru hemla- og tímareimaskipti og að skipta um kúplingar.

Bílaspítalinn er rótgróið fyrirtæki stofnað 1992. Fyrirtækið er staðsett í Kaplahrauni 1, Hafnarfirði í 570 fermetra húsnæði, útbúið með bílalyftum og nýjustu greiningartækjum til bílaviðgerða. Viðskiptavinir okkar eru bæði einstaklingar, fyrirtæki og öll tryggingafélögin.



Við tjónaskoðum fyrir öll tryggingafélögin

Bílaspítalinn er með samning við öll tryggingafélögin um tjónaskoðun.

Við leggjum áherslu á fljóta og góða þjónustu, allt frá tjónaskoðun og í gegnum viðgerðaferlið. Við vitum að tími þinn er dýrmætur og því leggjum við áherslu á að viðgerðin taki sem skemmstan tíma.

Við erum einnig innan handar varðandi afnot af bílaleigubíl á meðan við gerum við þinn bíl.



Employees

Ingvi Þór Sigfússon

Framkvæmdastjóri
bsp@bsp.is
c