Mynd af Póstdreifing ehf

Póstdreifing ehf

Póstdreifing býður upp á víðtæka dreifingarþjónustu á öllum pósti og vörudreifingu. Einnig er boðið upp á sérhæfða þjónustu og lausnir á borð við markhópagreiningu, plastpökkun, áritun og fleira – sem er sniðin að þörfum viðskiptavinarins.

Kjarnadreifingarsvæðið Póstdreifingar er höfuðborgarsvæðið og Akureyri, þar sem boðið er upp á heildreifingu sex daga vikunnar inn á öll heimili. Að auki er boðið upp á dreifingar á aðra landshluta eftir þörfum.

Vörudreifing er mikilvægur þáttur í starfsemi Póstdreifingar en fyrirtækið býður viðskiptavinum sínum sérhæfða þjónustu í vörudreifingu á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þess. Póstdreifing hefur yfir að ráða öflugum bílaflota eða allt frá litlum skutlum upp í stærstu gerð af lyftubílum sem eru tilbúnir til að þjónusta þig.

Póstdreifing keppir að því að vera í forystu á sviði dreifingar með því að bjóða víðtæka og áreiðanlega þjónustu á góðu verði.


c