
Sólheimar sjálfbært samfélag

Telephone 4226000
Other telephone numbers >Sólheimar , 805 Grímsnes og Grafningshreppur
kt. 6102694519
Sólheimar hafa unnið stefnumótun fram til ársins 2014. Þar sem allar starfseiningar hafa lagt fram sína stefnu; búsetuþjónusta, handverkstæði, framkvæmdir, Sólheimakirkja og áfram má telja.
Það er því margt spennandi sem líta mun dagsins ljós á næstu misserum og árum í starfi Sólheima.
Hér fyrir neðan eru þau grunnatriði sem unnið var með í stefnumótuninni.
Starf Sólheima sjálfseignarstofnunar (ses.) byggir á grunni sem Sesselja H. Sigmundsdóttir lagði í byrjun 20. aldar. Við mótun starfs Sólheima hefur ávallt verið horft sérstaklega til mannspeki Rudolf Steiner, kristilegra gilda og samspils umhverfis- og manngildis.
Markmið Sólheima er að skapa samfélag sem veitir öllum íbúum tækifæri til að vaxa, þroskast og að vera nauðsynlegur og virkur þátttakandi í þjóðfélaginu. Unnið er útfrá „öfugri blöndun“, þ.e. samfélagið er byggt upp með þarfir hins fatlað/þess sem er að fá tækifæri að leiðarljósi, það er hinn „ófatlaði“ sem lagar sig að því samfélagi.
Markmiði Sólheima er náð með eflingu og samþættingu eftirfarandi þátta:
- Vinna/starfsendurhæfing, fjölbreytt atvinnutækifæri og úrræði til starfsþjálfunar.
- Félagsstarf – hrynjandi/andleg næring, fjölbreytt félagsstarf þar sem allir íbúar hafa tækifæri til þátttöku. Hrynjandi sem skapar stöðugleika, festu, fjölbreyttni og öryggi.
- Búseta, fjölbreytt framboð á húsnæði til leigu, auk framboðs á lóðum.
- Þjálfun / meðferð, tækifæri til starfsmentunnar, þáttöku í námskeiðum og fyrirlestrum. Framboð meðferðarúrræða s.s. tónlistar, handverks, hrynlistar og atferlisþjálfunar.
Markmið þessi ná til allra íbúa, en áherslur eru persónubundnar.
Employees
Kristín B Albertsdóttir
Framkvæmdastjóri