Mynd af Ísfell ehf

Ísfell ehf


Ísfell er leiðandi fyrirtæki í hönnun, sölu og þjónustu á útgerðar-, fiskeldis-, iðnaðar- og öryggislausnum. Þjónusta fyrirtækisins markast af góðu úrvali af gæðavörum, áreiðanleika gagnvart viðskiptavinum og frammúrskarandi starfsfólki með víðtæka þekkingu á ýmsum búnaði fyrir sjávarútveg og iðnað.

Ísfell er eina fyrirtækið á Íslandi sem er meðlimur að Lifting Equipment Engineers Association (LEEA). LEEA eru alþjóðasamtök lyftitæknigreina, sem starfa á heimsvísu og eru leiðandi samtök hvað varðar alla starfsemi fyrirtækja sem nota og framleiða hífíbúnað. Starfsmenn Ísfells sækja regluleg námskeið hjá LEEA og sýna fram á kunnáttu sína með skriflegum prófum. Ef ásættanlegur árangur næst í prófum fær viðkomandi starfsmaður prófskírteini útgefið af LEEA sem sýnir fram á hæfni til að taka út hífibúnað hvar sem er í heiminum.

Ísfell sérhæfir sig í sölu á hífi- og fallvarnarbúnað og hefur leyfi til þess að skoða búnað sem skylt er að gera a.m.k. einu sinni á ári. Birgjar Ísfells eru með áratuga reynslu á framleiðslu hífi- og fallvarnarbúnaði, þar með uppfylla þeir alla ströngustu öryggisstaðla sem til iðnaðar eru gerðar.

Með aukinni öryggismenningu er orðið sífellt algengara að fyrirtæki sendi starfsmenn sína á rafræna hífi- og/eða fallvarnarnámskeiðið hjá Ísfelli, þar sem farið er yfir notkun og meðhöndlun slíks búnaðar. Á námskeiðum er lögð áhersla á að minnka slysahættu með réttri meðhöndlun búnaðar og að búnaður endist sem lengst. Að loknu námskeiði, eftir að hafa sýnt fram á þekkingu sína á námsefninu gefur Ísfelli út viðurkenningarskírteini um að viðkomandi hafi tekið námskeið hjá fyrirtækinu með fullnægjandi árangri. Námskeiðið má nálgast á heimasíðu Ísfells: www.isfell.is



Other registrations

Ísfell Hafnarfirði
Óseyrarbraut 28, 220 Hafnarfjörður
Ísfell Patreksfirði
Vatnseyri , 450 Patreksfjörður
Ísfell Akureyri
Hjalteyrargata 4, 600 Akureyri
Ísfell Ólafsfirði
Pálsbergsgata 1, 625 Ólafsfjörður
Ísfell Húsavík
Suðurgarður 2, 640 Húsavík
Ísfell Þorlákshöfn
Óseyrarbraut 28, 815 Þorlákshöfn
Ísfell Sauðárkrókur
Lágeyri 1, 550 Sauðárkrókur
Ísfell Vestmannaeyjum
Kleifarbryggja 4-6, 101 Reykjavík

Employees

Guðbjartur Þórarinsson

Framkvæmdastjóri
c