Mynd af Vottunarstofan Tún ehf

Vottunarstofan Tún ehf

Tún er faggild eftirlits- og vottunarstofa fyrir lífræna og sjálfbæra framleiðslu. Markmið Túns er að veita gæðaþjónustu til framleiðenda í landbúnaði, sjávarútvegi og vinnslu náttúrulegra afurða.

Tún er þróunarfélag í þágu almannahagsmuna og vinnur að nýsköpun matvælaframleiðslu og náttúrunytja í samræmi við alþjóðlega staðla um tillitsemi við lífríki og náttúru. Siðfræði sjálfbærrar þróunar og heilbrigðis allrar lífkeðjunnar eru megin leiðarljós í þjónustu Túns.

Tún hefur aðsetur í Reykjavík en þjónar viðskiptavinum óháð búsetu eða þjóðerni og starfar náið með sambærilegum vottunarstofum í öðrum löndum.

Employees

Bjarni Ó. Halldórsson

Formaður stjórnar

Gunnar Ágúst Gunnarsson

Framkvæmdastjóri
tun@tun.is

Rannveig Guðleifsdóttir

Verkefnastjóri
rg@tun.is
c