Mynd af Bílaklæðningar ehf

Bílaklæðningar ehf

Lógo af Bílaklæðningar ehf

Sími 5540040

Önnur símanúmer >

Kársnesbraut 100, 200 Kópavogur

kt. 4801750189




Bílaklæðningar starfa við allskyns breytingar sem tilheyra yfirbyggingum, klæðningum og breytingum á bifreiðum. Um er að ræða staðlaða framleiðslu, viðgerðarþjónustu og framleiðslu að ósk hvers viðskiptavinar. Einnig er fyrirtækið með smíði á ýmsum kerrum, m.a hestakerrur sem nefnast LEIKNIR, hesthúsa innréttingum og fleiri smíðum er tilheyra hestamennsku.

Fyrirtækið hefur um árabil verið með innflutning á hinum ýmsum vörum bæði til eigin smíða og framleiðslu og einnig til endursölu. Má þar nefna m.a flexitora, beisli og tilheyrandi fyrir kerrur. Álefni eins og álborð. Teppi og áklæði í bíla, öryggisbelti og opnanlega glugga í kerrur. Krossvið í sérstærðum, plastplötur í ýmsum stærðum, vörulyftur á bíla og gúmmímottur ofl., ofl.


Fyrirtækið hefur um árbil verið með umboð fyrir GOVAPLAST sem er gæðaplast notað í gripahús og til ýmissa nota þar sem mikið mæðir á og þörf er á viðhaldsfríu efni.Heitklæðning á palla af öllum gerðum pallbíla og hestakerrrum ásamt sendibílum og farþegabílum. Heitklæðningin er gúmmíkennd húð sem sprautuð er heit á fleti og hefur gríðarlega viðloðun og styrkleika. Enska heitið að efninu er “FMJ” sem stendur fyrir “Full Metal Jacket”. Einnig er það ávallt kallað “Some things are made to last” sem útskýrir styrkleika og eiginleika efnisins.



Starfsmenn

Sveinn Ragnarsson

Framkvæmdastjóri
c