Tónlistarskóli Ísafjarðar

Námsframboð
Skólinn starfar nú á þremur stöðum á norðanverðum Vestfjörðum, á Ísafirði, Flateyri og Þingeyri. Nemendur eru nær 250 og kennarar á þriðja tug. Kennt er á píanó, harmóníku, gítar, rafgítar, bassa, fiðlu, víólu, selló, blokkflautur, þverflautu, klarinett, saxófón, trompet, básúnu, horn, slagverk og einsöngur. Þá eru kenndar ýmsar tónfræðigreinar, tónfræði, hljómfræði, tónheyrn og tónlistarsaga.
Samleikur og samsöngur setja mikinn svip á skólastarfið, þrír kórar starfa í skólanum, strengjasveitir yngri og eldri nemenda, lúðrasveit, skólalúðrasveit og ýmsir minni hópar. Fjölbreytt og viðamikið tónleikahald er líka sterkur þáttur og lögð er rík áhersla á að allir fái að spila á tónleikum.
Tónlistarsalurinn Hamrar er í viðbyggingu við skólahúsið og er hann mikið notaður fyrir tónleika, ráðstefnur og fleiri samkomur. Hann tekur 150 manns í sæti og þykir hljómburðurinn sérlega góður.
Starfsmenn
Bergþór Pálson
Skólastjóri