Merkjasaumur prentun ehf

Hjá Prentsýn hefur verið unnið við merkingar á T-bolum og fatnaði frá upphafi. Í dag er framleiðslan fjölbreytt, þó transfer merki séu aðal framleiðslan, og höfum við unnið sérstaklega að sérhæfingu á því sviði. Hjá Prentsýn silkiprentum við á ýmislegt, og er þar helst að nefna transfermerki sem eru prentuð á sérstakan pappír og límborin. Þau eru svo notuð til að merkja ýmiskonar fatnað svo sem vinnufatnað. Transfermerki eru mjög hentug þar sem hægt er að geyma þann hluta sem er kannski umfamprentað til frekari nota seinna. Stafræn prentun er hágæða prentun á límmiða, bannera, striga, filmur í glugga og fleira. Við notum stafrænan prentara frá Roland sem gefur okkur möguleika á að prenta og skera út merki sem hægt er að þrykkja á fatnað. Við stafræna prentun þarf ekki sama undirbúning og við silkiprentun, og er því mjög haghvæmt fyrir minni verk. Útskurður í límdúk er góð leið til að merkja nánast hvað sem er. Þetta er auðveld leið til að merkja bíla, glugga, skilti og fleira. Bjóðum einnig stafræna prentun á límdúk sem líka er hægt að skera út. Þá bjóðum við útskurð í efni sem hægt er að hitaþrykkja á fatnað, mjög hentugt til merkinga á litlu magni, eða til að nafnamerkja flíkur Útsaumuð merki eru falleg og njóta vaxandi vinsælda. Nafnamerkt handklæði, sængurver og flísteppi eru skemmtilegar gjafir. Við bjóðum fyrirtækjum sem og einstaklingum persónulega og góða þjónustu. Tökum að okkur bæði stór og smá verkefni.

Starfsmenn

Gunnar Einarsson

Framkvæmdastjóri/Eigandi

Ragnheiður Þorsteinsdóttir

Eigandi
c