Fjármálaeftirlitið

Lógo af Fjármálaeftirlitið

Sími 5203700

Önnur símanúmer >

Suðurlandsbraut 32, 108 Reykjavík

kt. 5412983209

Fjármálaeftirlitið er sjálfstæð ríkisstofnun með sérstaka stjórn. Hlutverk þess er að fylgjast með því að starfsemi eftirlitsskyldra aðila sé í samræmi við lög og reglur og að öðru leyti í samræmi við eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti. Kveðið er á um starfsemi og hlutverk Fjámálaeftirlitsins í lögum nr. 87/1998, um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, og lögum um eftirlitsskylda aðila á hverju sviði. Eftirgreindir flokkar fjármálafyrirtækja og aðila í fjármála- og vátryggingastarfsemi lúta eftirliti Fjármálaeftirlitsins: Viðskiptabankar, sparisjóðir, lánafyrirtæki (fjárfestingarbankar), verðbréfafyrirtæki, verðbréfamiðlanir og rekstrarfélög verðbréfasjóða, sbr. lög nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki. Vátryggingafélög, sbr. lög nr. 60/1994, um vátryggingastarfsemi. Félög og einstaklingar sem stunda vátryggingamiðlun, sbr. lög nr. 32/2005, um miðlun vátrygginga. Kauphallir og aðrir skipulegir tilboðsmarkaðir, sbr. lög nr. 34/1998, um starfsemi kauphalla og skipulegra tilboðsmarkaða. Verðbréfamiðstöðvar sbr. lög nr. 131/1997, um rafræna eignarskráningu verðbréfa. Lífeyrissjóðir, sbr. lög nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Innlánsdeildir samvinnufélaga, sbr. lög nr. 22/1991, um samvinnufélög. Fjármálaeftirlitinu er einnig falið eftirlit með nokkrum aðilum sem starfa samkvæmt sérlögum. Nánari upplýsingar um Fjármálaeftirlitið, fyrirkomulag eftirlitsins og skrá yfir eftirlitsskylda aðila er að finna á vefsíðu eftirlitsins. Um eftirlit með starfsemi innlendra aðila erlendis og erlendra aðila hér á landi fer samkvæmt ákvæðum sérlaga og alþjóðasamningum sem Ísland er aðili að. Fjármálaeftirltiið vistar Úrskurðarnefnd í vátryggingarmálum og Úrskurðarnefnd í viðskiptum við fjármálafyrirtæki. Upplýsingar um nefndirnar og hvernig staðið skal að málskotum til þeirra er að finna á vefsíðu eftirlitsins.

Starfsmenn

Jónas Fr. Jónsson

Forstjóri

Ragnar Hafliðason

Aðstoðarforstjóri
c