Mynd af Raftákn ehf

Raftákn ehf




Raftákn vinnur eftir vottuðu gæðastjórnunarkefi sem byggt er á ÍST EN ISO 9001:2008. Gæðastjórnunarkerfið var tekið út og vottað 2011.

Fyrirtækið er rekið í þrem deildum eða sviðum, byggingasviði, iðnaðarsviði og fjarskiptasviði.

Byggingasvið sér um hönnun allra almennra raflagna í íbúðarhús og stærri byggingar ásamt grunnlögnum s.s. lögnum í götur og vegi, stofnlagnir að mannvirkjum o.s.frv. Einnig áætlanagerð, kostnaðaráætlanir og eftirlit með framkvæmdum.

Iðnaðarsvið sér um hönnun stýringa og stjórnkerfa, forritun og prófanir. Þar er um að ræða virkjanir, veitur, jarðgöng ásamt smærri verkum. Einnig áætlanagerð, kostnaðaráætlanir og eftirlit með framkvæmdum.

Fjarskiptasvið sér um hönnun jarðsímalagna, gerð tengiskema og skráningar.


Raftákn tekur að sér hönnun raflagna, lýsingar og loftræsikerfa í ýmsar gerðir nýbygginga svo sem skóla, íþróttahús, verslunar- og skrifstofuhús af ýmsum stærðum og gerðum. Fyrir hafnir hefur stofan hannað lýsingu hafnarsvæða og landtenginu skipa.
Raftákn tekur að sér forritun iðntölva fyrir stjórnun verksmiðja, veitna, virkjana o.fl. ásamt forritun skjástýrikerfa.

Raftákn sá um alla hönnun raflagna í Hvalfjarðargöng, Fáskrúðsfjarðargöng, Almannaskarðsgöng og Héðinsfjarðargöng, þ.e. alla þætti er lúta að rafmagni. Raftákn sá einnig um hönnun lýsingar- og rafkerfa fyrir Hófsgöngin á Suðurey í Færeyjum, Múlagöng, Strákagöng og Vestfjarðagöng.
Forritun hússtjórnarkerfa svo sem Instabus (EIB) hefur verið vaxandi þáttur í starfssemi Raftákns að undanförnu.

Raftákn tekur að sér hönnun jarðsímalagna ásamt umsjón og eftirliti með framkvæmdum. Einnig sérhæfð verkefni tengd skráningu og upplýsingavörslu fjarskiptasambanda.Raftákn vinnur nú, samkvæmt samningi frá 1. des 2008, að hönnun og áætlanagerð jarðsímalagna og þróun viðbóta við hugbúnað sem heldur utan um skráningar í fjarskiptakerfi Mílu ehf.

Höfuðstöðvar Raftákns eru að Glerárgötu 34 á Akureyri, einnig er starfsstöð að Ármúla 42 í Reykjavík.



Aðrar skráningar

Raftákn
Stórhöfði 21, 110 Reykjavík

Starfsmenn

Eva Hlín Dereksdóttir

Framkvæmdastjóri
raftakn@raftakn.is

Gunnlaugur Búi Ólafsson

Sviðsstjóri iðnaðarsviðs

Elmar Arnarson

Sviðsstjóri byggingarsviðs

Vörumerki og umboð

IGSS
Skjámyndakerfi
Siemens
Iðntölvubúnaður
c