Fjarðarbón ehf

Fjarðarbón opnaði 6. mars 2009. Markmiðið var sett á vönduð og góð vinnubrögð ásamt góðri þjónustu við viðskiptavini, svo sem að sækja og skila bílum ásamt rúmum opnunartíma, til að gera sem best við viðskiptavini stöðvarinnar. Fyrirtækið hefur komið sér upp nokkuð stórum hóp ánægðra viðskiptavina sem fer óðum stækkandi. Við erum með afsláttarkort sem virkar þannig, að þeim mun oftar sem komið er þá hækkar afslátturinn. Kortin eru ekki bundin við neina sérstaka bifreið, heldur getur viðskiptavinurinn notað kortið fyrir alla bíla fjölskyldunnar. Einnig er 10% eldriborgara og öryrkjaafsláttur.
Hraðþrif
Fjarðarbón býður upp á nýja þjónustu - hraðþrif.
Fjarðarbón býður líka upp á bremsuklossaskipti fyrir bæði fólkbíla og jeppa.
