Mynd af Veitinga og gisthúsið Brekka

Veitinga og gisthúsið Brekka

Restaurant and guesthouse Brekka



Brekka er veitingahús og gistiheimili staðsett í Hrísey, Eyjafirði. Við bjóðum uppá góðan mat með úrvals hráefni og leggjum áherslu á notalega stemningu.

Brekka er glæsilegt veitingahús sem starfrækt hefur verið frá 1984, sem gerir það að elsta steikhúsi á Íslandi.

Við bjóðum uppá eitthvað fyrir alla, stórar steikur, glænýjan fisk úr Eyjafirðinum, hamborgara, pizzur, kökur, gott kaffi og margt fleira. Þá erum við með bar með góðu úrvali af bjór og leggjum áherslu á íslenska framleiðslu.



Brekka er einnig gistihús með gistipláss fyrir 8 fullorðna, í fjórum herbergjum. Þrjú herbergi eru með hjónarúmi og eitt með tveimur aðskildum rúmum. Vaskur er á öllum herbergjum en snyrting og sturta er sameiginleg á gangi.




Um Hrísey:


Eyjan er ævintýraheimur út af fyrir sig sannkölluð "perla Eyjafjarðar". Hún er önnur stærsta eyjan við Ísland, næst á eftir Heimaey. Þar er mannlífið skemmtilegt, náttúran blómleg, útsýni stórfenglegt um allan fjörð og fuglalífið engu öðru líkt. Að ganga um hellulagðar götur bæjarins eða rölta um fallegar gönguleiðir í návígi við náttúruna og sjóinn, er einstök upplifun. Hrísey er um 7,5 km á lengd og 2,5 km á breidd þar sem hún er breiðustað sunnanverðu og í eyjunni búa um 120 manns.

Í Hrísey er frábær sundlaug með barnalaug, rennibraut og heitum potti.

Þá eru tvö söfn sem hægt er að skoða í Hrísey og Gallerí með alls kyns handverki.

Samgöngur:
Það er leikur einn að komast út í eyju. Hríseyjarferjan gengur á milli alla daga vikunnar. Sigling út í eyju með ferjunni Sævari tekur aðeins um 15 mínútur. Farið er frá Árskógssandi en þaðan er eingöngu um 25 mínútna akstur til Akureyrar.


Starfsmenn

Arnar Gústafsson

Eigandi
c