Mynd af Útfararstofa Hafnarfjarðar ehf

Útfararstofa Hafnarfjarðar ehf


Flestir þurfa einhvern tímann að horfast í augu við dauðann. Að missa ástvin eða ættingja er eitt það erfiðasta sem við göngum í gegnum. Tilfinningar eru margvíslegar. Sorgin er eðlileg viðbrögð. Óhjákvæmilega þarf þá að huga að þeim þáttum er snúa að útför þess látna.

Spurningarnar eru margar. Þá er gott að geta leitað til aðila sem hafa þekkingu og reynslu á þeim þáttum. Við hjá Útfararstofu Hafnarfjarðar búum yfir þessari reynslu og höfum starfað við útfararþjónustu um árabil.

Skrifstofa Útfararstofu Hafnarfjarðar er til húsa í Flatahrauni 5a. Sími: 565-5892

Vegna eðlis starfseminnar eru aðstandendur hvattir til að hringja og bóka viðtalstíma.

Samstarfsaðili Útfararstofu Hafnarfjarðar er Útfararstofa Íslands, Suðurhlíð 35, Reykjavík, S. 581-3300.

Hafa samband með tölvupósti.

Útfararstofa Hafnarfjarðar sér um og útvegar:

  • Útfararstjóri tekur að sér umsjón útfarar í samráði við prest og aðstandendur.
  • Útfararstjóri kemur heim til aðstandenda og ræðir skipulag útfarar ef óskað er.
  • Flytja þann látna af dánarstað í líkhús.
  • Koma á sambandi við þann prest sem aðstandendur óska eftir.
  • Aðstoða við val á kistu og líkklæðum.
  • Búa um lík þess látna í kistu og snyrta ef með þarf.
  • Fara með tilkynningu í fjölmiðla.
  • Stað og stund fyrir kistulagningarbæn og útför.
  • Aðstoð við skrif minningargreina.
  • Legstað í kirkjugarði.
  • Organista, sönghópa, einsöngvara, einleikara og/eða annað listafólk.
  • Kistuskreytingu og fána.
  • Blóm og kransa.
  • Sálmaskrá og aðstoðar við val á sálmum.
  • Dánarvottorð og líkbrennsluheimild.
  • Duftker, ef líkbrennsla á sér stað.
  • Sal fyrir erfidrykkju og gestabók ef óskað er.
  • Aðstoð við umsókn útfararstyrkja.
  • Kross og skilti á leiði.
  • Legstein.
  • Flutning á kistu út á land eða utan af landi.
  • Flutning á kistu til landsins og frá landinu.
  • Veitum útfararþjónustu hvar sem er á landinu.

Starfsmenn

Sverrir Einarsson

Framkvæmdastjóri
sverrir@utforin.is

Jón G Bjarnason

Jóhanna Eríksdóttir

c