Lögmenn Suðurlandi ehf

Lögfræðiþjónusta við fyrirtæki Þjónusta við fyrirtæki er mikilvægur þáttur í starfsemi okkar. Meðal verkefna okkar á því sviði eru: * Stofnun félaga og fyrirtækja * Gerð fjármögnunarsamninga * Álitsgerðir og almenn ráðgjöf * Rekstur mála fyrir úrskurðar- og kærunefndum á stjórnsýslustigi * Samingsgerð á sviði verslunar og viðskipta * Samingsgerð um stofnun og slit vinnu- og verksamninga * Einkaleyfi og vörumerki * Aðstoð á sviði umhverfisréttar * Aðstoð við endurskipulagningu fjármála, þ.a.m. greiðslustöðvun, nauðasamninga, skuldaskil ofl. * Aðstoð á sviði gjaldþrotaréttar * Aðstoð við endurfjármögnun, lántökur, veðsetningar ofl. * Rekstur skaðabótamála * Málflutningur til sóknar og varnar fyrir héraðsdómstólum, Hæstarétti Íslands og gerðardómstólum. * Verksamningar * Höfundarréttarmálefni * Innheimta vanskilaskulda og aðstoð við skipulagningu á innheimtuferli innan fyrirtækja. Lögfræðiþjónusta við bændur Talsverður þáttur í starfsemi okkar er þjónusta við bændur. Dæmi um verkefni á því sviði eru: * Aðstoð við bændur vegna ábúðarloka, þ.m.t. hagsmunagæsla vegna úttektar á jörðum * Landamerkjamál * Hagsmunagæsla vegna eignarnáms * Hagsmunagæsla vegna fullvirðisréttar, greiðslumarks og búmarks * Gerð byggingarbréfa * Hlutafélagavæðing * Hagsmunagæsla fyrir eigendur hálendisjarða og annara rétthafa á hálendinu gagnvart óbyggðanefnd * Sala mjólkurkvóta Lögfræðiþjónusta við einstaklinga Við þjónum einstaklingum á öllum sviðum lögfræðinnar, sem varða persónulega hagsmuni fólks svo sem: * Skaðabótamál, uppgjör * Gerð kaupmála * Gerð erfðaskráa * Hjónaskilnaðarmál * Slit á óvígðri sambúð * Forræðisdeilur * Umgengnisréttardeilur * Skipti á dánarbúum * Aðstoð við skuldaskil * Fjármálaleg ráðgjöf af ýmsu tagi t.d. vegna kaupa á fasteignum eða fyrirtækjum * Innheimta vanskilaskulda * Gerð eignaskiptasamninga í fjöleignahúsum * Réttaraðstoð í opinberum málum, réttargæsla við lögreglurannsókn, málsvörn fyrir héraðsdómi og Hæstarétti Íslands. Lögfræðiþjónusta við húsfélög Við þjónum húsfélögum við rekstur fjölbýlishúsa: * Innheimtur á húsgjöldum ofl. * Aðstoð við gerð verksamninga * Gerð eignaskiptasamninga * Almenn ráðgjöf Fasteignasala

Starfsmenn

Ólafur Björnsson, hrl.

Framkvæmdastjóri
oli@log.is

Sigurður Sigurjónsson, hrl.

sigsig@log.is
c