Mynd af Bastard Brew and Food

Bastard Brew and Food

Á Bastard er bruggsmiðja þar sem bruggaðir eru bjórar. Nú eru tveir bjórar á boðstólnum ásamt á annan tug bjóra frá öðrum brugghúsum og góðu úrvali af bjór á flöskum.

Einnig eru metnaðarfullir craft kokteilar á boðstólnum þar sem meðal annars er búið að gera stílfæringu á drykkjum eins og Moscow Mule og Aperol Spritz. Mikið úrval er af hinum ýmsu romm-, viskí- og gintegundum ásamt fjölda af mismunandi stílum af tonic og ævintýralegum gin og tonic pörunum.

Eldhúsið er opið 11.30 til 22 alla daga. Á matseðlinum er boðið upp á rétti eins og stökk “flatbread” í ýmsum útfærslum, smá-taco, hamborgara, kjúkling Louisiana, osta- og kjötskurðarplatta og fleira. Eins verður hægt að frá Brunch og fisk dagsins fyrri part dags.

Tónlistin er lífleg og þægileg þar sem saman koma rokk, soul, fönk og diskó. Plötusnúðar eru að spila fram á nótt um helgar. Opið er frá hádegi alla daga fram á nótt um helgar og happy hour alla daga frá 16-19.

Starfsmenn

Guðmundur Finnbogason

Framkvæmdastjóri
c