Árnanes - gistihús

Í Árnanesi er boðið upp á gistingu fyrir 40 manns í 18 herbergjum. Herbergin eru í fimm aðskildum húsum og eru þau vel búin og rúmgóð. Sjö þeirra eru með sér baðherbergi og níu herbergi eru án baðs. Í Árnanesi er veitingasalur með listmunasölu sem tekur 40 manns í sæti og er þar lögð áhersla á sjávarrétti og hefðbundinn íslenskan mat. Árnanes er við þjóðveg eitt og þaðan er einn km. að Hornafjarðarflugvelli og sex km. til Hafnar. Þaðan er hægt að komast í ferðir á Skálafellsjökul, að Jökulsárlóni ofl.

Starfsmenn

Helga Erlendsdóttir

Framkvæmdastjóri

Ásmundur Gíslason

c