Mynd af Kaffi Duus ehf

Kaffi Duus ehf

Um Kaffi Duus

Kaffi Duus var opnað 26. nóvember 1998. Það byrjaði sem lítið kaffihús með sæti fyrir 30 manns, boðið var upp á grillmat og aðra smárétti. Húsið er staðsett við gömlu Duus húsin við smábátahöfnina í Keflavík, með frábæru útsýni yfir höfnina. Bergið og smábátahöfnin fyrir neðan, sjórinn og fjallasýn í fjarska er vel viðrar. Þegar dimmir þá er bergið sem liggur við höfnina upplýst á kvöldin.

Árið 2000 var bætt við 65 sæta hliðarsal með góðu gluggaútsýni yfir smábátahöfnina og bergið, salurinn hefur notið gríðalegra vinsælda meða viðskiptavina okkar.

Í janúar 2008 var svo tekin í notkun nýr salur sem rúmar 65 manns ásamt fundaraðstöðu á efri hæð með sæti fyrir 30 manns, svo alls getur staðurinn tekið á móti 180 manns í sæti.

Húsið býður uppá að vera með allt að þrjá mismunandi hópa í húsinu á sama tíma vegna skiptingu hússins.

Umhverfis húsið er stór og mikil verönd þar sem gestir geta snætt á góðviðrisdögum.

Kaffi Duus opnar kl. 11:00 alla daga vikunnar.

Hádegisverðarseðill er frá kl. 11:30 til 14:00 Þar bjóðum við upp á fiskrétti, grillrétti og erum við orðin vel þekkt fyrir okkar frábæru salöt og rjómuðu súpur sem fólk getur fengið í brauði eða í hefðbundinni skál.

Hefðbundin matseðill er á milli kl. 14:00 til 18:00 með hamborgurum, samlokum, pasta og barnaréttum. Kaffidrykkir, brauðmeti og tertur eru í boði allan daginn.

A La Carte matseðillinn er frá kl 18:00 til 22:00. Okkar sérfag eru fiskréttir og er það sem við seljum mest af.

Við bjóðum gamla sem nýja viðskiptavini hjartanlega velkomna.

Starfsmenn

Sigurbjörn Sigurðsson

Framkvæmdastjóri
c