Sementsverksmiðjan ehf
Sementsverksmiðjan ehf flytur inn og hefur stöðugt á boðstólum þrjár tegundir sements, Standardsement FA, Industrisement og Anleggsement. Allar sementstegundirnar eru seldar í lausu til dreifingar í tankbílum. Einnig eru allar tegundir seldar í stórsekkjum (1.000 og 1.500 kg). Þá er Standardsement FA og Anleggsement selt í 20 kg sekkjum.
Sementstegundirnar uppfylla allar kröfur byggingareglugerðar og nýlegs Evrópustaðals EN 197-1:2000. Staðlinum fylgir bæði heimild og skylda til að nota CE-merkið sem aftur á móti er háð vottun með óháðu stöðugu gæðaeftirliti NMÍ.
Vörulýsingar eða tækniupplýsingar fyrir Standardsement FA, Industrisement og Anleggsement er að finna hér til hliðar undir „Tækniupplýsingar“.
Nánari upplýsingar um sementstegundirnar, m.a. tækniupplýsingar, öryggisleiðbeiningar og vottunarskjöl má finna á heimasíðu Norcem AS:http://www.heidelbergcement.com/no/no/norcem/home.htm
Aðrar skráningar
Starfsmenn
Gunnar H. Sigurðsson
Framkvæmdastjóri