Mynd af Kolaportið

Kolaportið

Kolaportið var opnað 8. apríl 1989 í bílageymslu bílastæðasjóðs Reykjavíkur í húsi Seðlabankans í miðborg Reykjavíkur. Með stuðningi Reykjavíkurborgar og Fjármálaráðuneytisins flutti Kolaportið starfsemi sína á árinu 1994 í framtíðarhúsnæði á neðstu hæð Tollhússins við Tryggvagötu í miðborg Reykjavíkur.

Það eru fáir staðir hér á landi sem fólk sækir meira en markaðstorg Kolaportsins. Fjölbreytnin gerir þetta skemmtilega umhverfi ólíkt öllum öðrum verslunarstöðum, en þar er að finna notaða vöru, nýja vöru, matvæli, handverksvöru, fatnað, skartgripi, skó, antikvöru, húsgögn, bækur, innfluttar vörur frá öllum heimshornum, svo eitthvað sé nefnt. Stemningin á markaðstorginu er eins og í litlu bæjarfélagi, kaupmenn kalla á viðskiptavini, heildsalar kynna nýja vöru, stjórnmálaöfl dreifa bæklingum, kórar taka lagið og selja kompudót í fjáröflunarskyni, fjöldi manns er mættur með gamla dótið úr geymslunni og ættarmótin koma saman í Kaffi Porti.

Kolaportið er opið laugardaga og sunnudaga frá kl. 11-17.

Starfsmenn

Gunnar Hákonarson

Framkvæmdastjóri
c