Mynd af Í húsi blóma

Í húsi blóma

Í húsi blóma er falleg blómabúð sem staðsett er í spönginni í Grafarvogi. Verslunin var stofnuð 1999 og hefur síðan verið með falleg afskorin blóm, fallegar skreytingar og fallega gjafavöru. Við erum í sambandi við helstu blómabúðir í heiminum svo þú getur sent blóm,skreytingar eða gjafavörur til þeirra sem þér þykir vænt um hvar sem þú ert staddur í heiminum. Yfirleitt er þetta afhent sama dag og pöntun er gerð nema ef tímamismunur er mikill. Við sérhæfum okkur í fallegum skreytingum og blómvöndum ásamt allskyns vöruúrvali í gjafavöru. Einnig bjóðum við uppá allskyns vörur svo sem handgerða og handmálaða blómapotta, mikið úrval af kertum og servíettum ásamt allskyns árstíðartengdum vörum svo sem mikið úrval af íslenskum útiblómum á vorin. Við í húsi blóma hugsum vel um viðskiptavini okkar og reynum að allir séu 100% ánægðir með þær vörur og þjónustu sem þeir fá hjá okkur. Því eftir allt þá eiga gjafir frá okkur að framkalla bros en ekki fýlu. Þess vegna bjóðum við þá þjónustu að þú getir sent tölvupóst eða hringt og spurt um allt á milli himins og jarðar því við getum reynt að gera allt til þess að gleðja viðskiptavininn

Starfsmenn

Lúðvík Þórisson

Eigandi / framkvæmdastjóri
8957555

Kort

c