Mynd af Menu Veitingar ehf

Menu Veitingar ehf



Menu Veitingar er alhliða veislueldhús.

Menu býður einnig fyritækjum, stofnunum og einstaklingum upp á lausnir í matarmálum í hádeginu. Hægt er að panta bakkamat eða mat fyrir mötuneyti, með eða án þjónustu. Boðið er upp á val milli ýmissa rétta, svo sem fisk- og kjötrétt, súpu og salats, heitan grænmetisrétt, samloku og hamborgara.

Við tökum við pöntunum til kl.10.00 á morgnanna svo hægt sé að tryggja afgreiðslu.

Boðið er upp á fría heimsendingaþjónustu, val á drykkjum og hnífapörum fyrir hóflegt verð og ávallt er boðið upp á gæða vöru og þjónustu.


Skírnarveislur, afmælisveislur, fermingarveislur, útskriftaveislur, brúðkaup, árshátíðir, erfidrykkjur og aðrir mannfagnaðir

Hér standa ýmsir kostir til boða. Til dæmis kaffihlaðborð, smáréttir, pinnamatur, tapas-veislur og okkar vinsælu þemahlaðborð. Þar má nefna sjávarréttahlaðborð, steikarhlaðborð, austurlenskt hlaðborð, amerískt hlaðborð, mexíkósk hlaðborð, klassísk köld borð, grillveislur, jólahlaðborð og hefbundinn þorramatur.



Öll okkar þjónusta snýst um ÞIG

Þjónarnir okkar sjá um að gera allt sem auðveldast fyrir ykkur þannig að þið getið einbeitt ykkur að gestunum ykkar.

Við getum séð um skreytingar og blóm útvegum dúka, servettur, kerti, skraut.

Nú eða bara kræsingarnar í veisluna,

allt eftir þínum óskum.

Nánari upplýsingar fást í síma 421-4797




Starfsmenn

Ásbjörn Pálsson

Eigandi/Framkvæmdastjóri
menu4u@menu4u.is

Kort

c