Mynd af Skáksamband Íslands

Skáksamband Íslands



Íslenskir skákmenn eru að sumu leyti þverskurður af samfélagi. Innan raða þeirra finnst fólk af ýmsum toga, rétt eins og í öðrum fjöldahreyfingum. Þar finnst fólk af öllum þjóðfélagsstigum, stjórnmálaskoðunum og trúarbrögðum, rétt til að nefna helstu aðgreiningar fólks. Elstu virku skákmenn landsins eru á níræðisaldri og þeir yngstu vart byrjaðir í barnaskóla. Flestir skákmenn eru reyndar karlkyns, en á síðustu árum hafa sífellt fleiri stúlkur tekið að glíma við reitina 64.

Íslenskir skákiðkendur og áhugamenn eru búsettir víða um land og jafnvel erlendis. Íslandhefur það fram yfir a.m.k. flest önnur lönd, að jafnvel í einangruðustu afkimum má finna fólk að tafli. Saga skákarinnar á Íslandi nær jafnframt langt aftur í aldir og má m.a. finna margar vísanir í skákiðkun í fornritunum.



Ísland nýtur mikillar virðingar í skákheiminum, enda eru hvergi jafn margir stórmeistarar miðað við íbúafjölda og hið sama gildir um vægi skákar, fjölda og stærð skákmóta og, síðast en ekki síst, afrek skákmanna á alþjóðavettvangi. Meðal annars af þeim sökum hafa flestir sterkustu skákmenn heims hina síðustu tvo áratugi sest að tafli á Íslandi. Og hér ákvað Robert J. Fischer að dvelja síðustu æviárin.

Skák er þjóðaríþrótt Íslendinga. Málið er ekki flóknara en það.



Aðrar skráningar

Starfsmenn

Gunnar Björnsson

Framkvæmdastjóri
skaksamband@skaksamband.is
c