
Hagi ehf - HILTI

HAGI ehf er rótgróið innflutningsfyrirtæki sem þjónustað hefur íslenskan iðnað frá 1963 með innflutningi á byggingavörum, festingum, vélum og verkfærum frá HILTI í Liechtenstein. Einnig hefur HAGI ehf sérhæft sig í sölu á viðurkenndum öryggisbúnaði, persónuhlífum og vinnufatnaði fyrir íslenskt atvinnulíf frá þekktum fyrirtækjum eins og Honeywell Safety Products, Snickers Workwear og UVEX svo eitthverjir séu nefndir.
Helstu vörumerki og vöruflokkar HAGI ehf eru :
Frá HILTI bjóðum við meðal annars Laserverkfæri, borvélar með og án höggs, brotvélar, batterísborvélar, kjarnaborvélar, slípirokka, skot- og gasbyssur, hjólsagir, sverðsagir og svo mætti lengi telja. Einnig frá HILTI höfum við úrval festinga fyrir stál og steypu. Allskyns röraupphengjur og brautir fyrir pípara. Brunaþéttingar í miklu úrvali til að þétta göt milli eldvarnarhólfa
Honeywell Safety Products
Honeywell er eitt af stærri fyrirtækjum í heiminum í dag og frá þeim höfum við til sölu allt sem viðkemur vinnufötum, persónuhlífum og öryggisbúnaði.
Helstu vörumerkin sem við bjóðum upp á frá Honeywell eru :
- Miller og Antec – Fallvarnarbúnaður
- Howard Leight – Heyrnahlífar og eyrnatappar
- Sperian – vinnuvettlingar, rykgrímur og öryggisgleraugu
- Bacou – Öryggisskór
- North – vinnuvettlingar, öryggishjálmar og heyrnahlífar
Snickers Workwear
Snickers er einn þekktasti og virtasti framleiðandi vinnufatnaðar í heiminum í dag með yfir 40 ára reynslu. Frá Snickers Workwear bjóðum við heildarlausnir í vinnufötum fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Vinnubuxur, bolir, peysur, úlpur, undirfatnaður, flíspeysur o.m.fl.
Merkjum allan fatnað eftir óskum hvers viðskiptavinar.
Uvex
Frá Uvex höfum við til sölu öryggisgleraugu, öryggishjálma og öryggisskó
Okkar þjónusta
Áhaldaleigan okkar býður upp á úrval tækja frá HILTI og leigjum við út all flest þau verkfæri sem HILTI hefur á boðstólnum í sinni vörulínu í dag.
Flísasögun og borun. Sögum og borum göt í flísar.
Þjónustuverkstæði okkar sér um viðhald og viðgerðir á þeim tækjum sem HAGI ehf hefur til sölu og er verkstæði okkar staðsett í verslun okkar að Stórhöfða 37.
Aðrar skráningar
Starfsmenn
Kristján I. Óskarsson
FramkvæmdastjóriÓskar Sigurðsson
StjórnarformaðurSóley Sigurjónsdóttir
Óskar G Óskarsson
sölufulltrúiÞórhallur Matthíasson
sölufulltrúiKristján Henry Guðnason
viðgerðirVörumerki og umboð
