Mynd af Fulltingi slf

Fulltingi slf


Fulltingi er eina lögmannsstofan á Íslandi þar sem starfsmenn sérhæfa sig í slysabótum og skaðabótum og hafa mikla reynslu á þessu sviði. Við útskýrum rétt þinn á mannamáli og hjálpum þér að fá þær bætur sem þú átt rétt á. Meðal þeirra mála sem við tökum að okkur eru umferðarslys, vélhjólaslys, slys á sjómönnum, vinnuslys, afleiðingar læknismeðferða og frítímaslys. Hafðu samband við okkur til að kanna rétt þinn – fyrsta viðtal er ávallt ókeypis.



Fulltingi er framsækin og traust lögmannsstofa sem veitir einstaklingum þjónustu á sviði skaðabóta og vátryggingaréttar. Hlutverk okkar er að leysa vel úr málum fólks, ráða því heilt og stuðla að því að hver og einn fái þær bætur sem hann á rétt á.

Við tökum á móti viðskiptavinum sem aufúsugestum og umgöngumst allt fólk af virðingu og hreinskiptni. Við stöndum við gefin loforð og höfum trúnað í fyrirrúmi.

Sérstaða okkar

Starfsmenn okkar eru sérhæfðir á sviði skaðabóta- og vátryggingaréttar og hafa margir hverjir áratuga reynslu í meðferð slysa- og skaðabótamála.

Styrkleiki okkar

Styrkleiki okkar felst í víðtækri þekkingu, reynslu og sérhæfingu. Þjónusta okkar einkennist af styrkri stjórn á hverju og einu máli og síðan en ekki síst, óbilandi vilja til að ná árangri í þágu viðskiptavina okkar.



c