Mynd af Framhaldsskólinn á Laugum

Framhaldsskólinn á Laugum



Framhaldsskólinn á Laugum er heimavistarskóli út í sveit. Mjög góð aðstaða er til náms, félagslífs og íþróttaiðkunar við skólann og heimavistaraðstaða er með því besta sem gerist á landinu. Kennt er á sex námsbrautum, almennri námsbraut á fyrsta hæfniþrepi, grunnnámsbraut á öðru hæfniþrepi og fjórum námsbrautum til stúdentsprófs félagsvísinda-, íþrótta-, kjörsviðs- ognáttúruvísindabraut. Um 100 nemendur stunda nám við skólann og koma þeir alls staðar að af landinu.

Skólinn státar af öflugu leiklistarstarfi í samvinnu við Leikdeild Ungmennafélagsins Eflingar. Skólinn heldur líka Tónkvísl, sem er undanfari skólans að Söngvakeppni framhaldsskólanna sem og söngkeppni grunnskólanna í nágrenninu og er henni sjónvarpað beint ár hvert. Auk þess er öflugt félagsstarf á vegum nemendafélags skólans og mikil áhersla á fjölbreytt íþróttastarf en skólinn á sitt eigið íþróttahús og er gjaldfrjáls aðgangur að íþróttahúsi, líkamsrækt, sundlaug og íþróttavöllum. Því má segja að á Laugum sé lögð alúð við að rækta bæði líkama og sál.



Framhaldsskólinn á Laugum starfar á grundvelli laga um framhaldsskóla nr.92/2008. Hlutverk hans er að stuðla að alhliða þroska allra nemenda og virkri þátttöku þeirra í lýðræðisþjóðfélagi með því að bjóða öllum nemendum nám við hæfi og að búa þá undir þátttöku í atvinnulífi og frekara nám. Auk þess að þjálfa og hvetja nemendur til þekkingarleitar er áhersla lögð á að efla siðferðisvitund þeirra, heilbrigði til líkama og sálar, ábyrgðarkennd, víðsýni, frumkvæði, sjálfstraust og umburðarlyndi. Nemendur eru þjálfaðir í sjálfstæðum og öguðum vinnubrögðum og gagnrýninni hugsun.



Í öllu starfi sínu leggur Framhaldsskólinn á Laugum áherslu á að grunnþættir almennrar menntunar, sem koma fram í almennum hluta aðalnámskrár framhaldsskóla, séu hafðir að leiðarljósi. Að læsi, sjálfbærni, heilbrigði og velferð, lýðræði og mannréttindi, jafnrétti og sköpun séu sýnilegir þættir í námi og kennslu, einnig í skipulagi, starfsháttum og þróunaráætlun skólans.



Starfsmenn

Sigurbjörn Árni Arngrímsson

Skólameistari
sarngrim@laugar.is
c